Árlegur fundur samtaka frumlyfjaframleiðeiðenda á Norðurlöndum var nýlega haldinn í Helsinki í Finnlandi. Fundurinn veitir ár hvert mikilvægt tækifæri fyrir starfsfólk og stjórnendur norrænu samtakanna til að skiptast á skoðunum, efla samstarf og ræða málefni sem varða lyfjaumhverfið á Norðurlöndum og í Evrópu.
Í setningarávarpi sínu fjallaði Anne-Mari Virolainen, framkvæmdastjóri finnsku samtakanna, um það breytta umhverfi sem lyfjaiðnaðurinn starfar í:
„Lyfjaiðnaðurinn starfar í dag í umhverfi sem mótast af efnahagslegri þróun, öryggismálum og lýðfræðilegum breytingum. Þessir stóru alþjóðlegu meginstraumar hafa áhrif á samfélög í heild og lyfjageirinn er þar engin undantekning. Við stöndum á krossgötum efnahagslegrar samkeppni ríkja. Þetta er okkur ekki alveg ókunnugt. Ný lyf sem koma fram hafa bætt heilsu fólks og stuðlað að fjárfestingum og hagvexti. Heilsa hefur lengi verið nátengd öryggi og er meðal þess sem almenningur leggur mesta áherslu á. Nú hefur mikilvægi hennar hins vegar aldrei verið meira.“
Á dagskránni voru fjölmörg áhugaverð erindi og umræður. Wille Rydman, heilbrigðisráðherra Finnlands, flutti lykilerindi undir yfirskriftinni Hvers vegna er nýsköpun í lyfjaiðnaði mikilvæg fyrir Finnland?
Nathalie Moll, framkvæmdastjóri Evrópusamtaka frumlyfjafyrirtækja (EFPIA), flutti einnig fróðlegt erindi um helstu áherslumál samtakanna um þessar mundir og svaraði spurningum fundargesta.
Einn af hápunktum fundarins var pallborðsumræða með leiðtogum norrænu lyfjaiðnaðarsamtakanna undir yfirskriftinni Hvernig tryggjum við að Evrópa velji nýsköpun í lyfjaiðnaði og viðhaldi öryggi sínu? Meðal þátttakenda í pallborðinu var Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka.
Þátttakendur fengu einnig gott tækifæri til að taka þátt í vinnustofum um sérhæfð málefni. Jafnframt fengu þeir dýrmæta innsýn í nálgun Finna á öryggis- og viðbúnaðarmál, sérstaklega mikilvægt hlutverk lyfja og lyfjabirgða í áætlanagerð vegna neyðar- og viðbúnaðaraðstæðna.
Sem hluti af dagskránni heimsóttu fundargestir varnar- og neyðarskýli fyrir almenna borgara, sem staðsett er neðanjarðar og var það gert undir leiðsögn Karoliinu Partanen, ráðherra almannatrygginga, og Maarit Vierunen, aðstoðarborgarstjóra Helsinki.
Fundurinn heppnaðist afar vel og vilja Frumtök færa starfsfólki finnsku samtakanna bestu þakkir fyrir framúrskarandi undirbúning og skipulag viðburðarins. Jafnframt þökkum við öllum þátttakendum fyrir mikilvæg framlög þeirra og ánægjulega samveru á fundinum.
Myndir frá fundinum má finna hér fyrir neðan.







