Lyf og lyfjamál voru töluvert í umræðunni í vikunni og Frumtök komu þar talsvert við sögu.

Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir, lyfjafræðingur og stjórnarkona Frumtaka, birti áhugaverða grein á Vísi sem vakti mikla athygli og fékk mikinn lestur. Sjá nánar í sérstakri frétt um grein Erlu.

Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, ræddi einnig lyf og lyfjamál í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þar var meðal annars fjallað um aðgengi að nýjum lyfjum og stöðu lyfjamála á Íslandi.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér: https://www.visir.is/k/4d6cec9f-1163-4d53-b8f1-adf15424657f-1791998886047/eru-sjuklingar-i-auknum-maeli-ad-utvega-ser-sjalfir-ny-lyf-erlendis-fra-

Í framhaldinu vann blaðamaður Vísis frétt upp úr viðtalinu sem lesa má hér:

https://www.visir.is/g/20262948607d/verdkrofur-stjornvalda-hafi-faelt-lyfjaframleidendur-fra