Ísland er töluvert undir meðaltali Evrópuríkja þegar kemur að markaðssetningu nýrra lyfja þegar þau hafa fengið markaðsleyfi í Evrópu. Á hinum Norðurlöndunum eru ný lyf almennt markaðssett fyrr en Evrópumeðaltalið segir til um, og þar eru fleiri ný lyf tekin fyrr í notkun en gerist hér á landi. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýrri samantekt EFPIA, samtaka frumlyfjaframleiðenda í Evrópu, um markaðssetningu nýrra lyfja.
Samantektin er birt í árlegri skýrslu EFPIA, en þar eru lönd borin saman eftir því hve mörg lyf hafa verið heimiluð af þeim sem fengið hafa markaðsleyfi í Evrópu á fjögurra ára tímabili. Í nýjustu skýrslunni má sjá að Ísland hefur tekið í notkun 52 lyf af þeim 168 nýjum lyfjum sem fengið hafa markaðsleyfi á tímabilinu, eða 31 prósent. Meðaltal Evrópu er 45 prósent.
Til samanburðar hefur Danmörk, sem er í fjórða sæti í upptöku nýrra lyfja, tekið í notkun 127 lyf, eða 76 prósent. Þýskaland hefur tekið flest lyf í notkun, 88 prósent, 147 af þessum 168 sem fengið hafa leyfi Lyfjastofnunar Evrópu.
„Þetta er gömul saga og ný þegar kemur að upptöku nýrra lyfja hér á landi. Á meðan Norðurlöndin öll eru fyrir ofan meðaltal Evrópuríkja, þá erum við í hópi ríkja Austur-Evrópu, með Búlgaríu og Rúmeníu á hvora hönd á listanum. Frumtök hafa bent á þessa stöðu nokkuð lengi og bent á leiðir til úrbóta, en ástæðurnar eru ekki síst krafan um lægsta lyfjaverð í viðmiðunarlöndum í innkaupum og lítið tillit tekið til smæðar markaðarins,“ segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka.
Meðal þess sem Frumtök hafa barist fyrir er að lyfjaverðstefna hins opinbera verði einfölduð þannig að samþykkt hámarksverð allra lyfja í heildsölu lúti sömu forsendum og að almennt verði miðað við meðalverð Norðurlandanna, í stað lægsta verðs líkt og verið hefur um árabil varðandi sjúkrahúslyf. Þá þurfi í verðákvörðunum að taka tillit til sérstöðu Íslands hvað varðar stærð markaðarins og hlutfallslega háan dreifingar- og umsýslukostnað.
Patients W.A.I.T. skýrsla EFPIA byggir á upplýsingum frá aðildarsamtökum EFPIA, en W.A.I.T. skammstöfunin stendur fyrir Patients Waiting to Access Innovative Therapies. Markmiðið er að kanna mun milli landa í aðgengi að lyfjum og hversu langan tíma tekur að fá greiðsluþátttöku ríkisins. Fram kemur að aðgengi að lyfjum er best í Norður- og Vestur-Evrópu, að Íslandi undanskildu.
Tilkynningu EFPIA um útkomu skýrslunnar er að finna HÉR.