Skip to main content

Ný stjórn Frumtaka kjörin.

Aðalfundur Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, fór fram nýlega í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf auk þess sem ný stjórn var kjörin. Líkt og síðustu ár er ný stjórn einvörðungu skipuð konum, en svo hefur verið frá árinu 2021.

Fráfarandi framkvæmdastjóri Frumtaka, Jakob Falur Garðarsson, stýrði fundinum og gerði grein fyrir helstu atriðum í starfsemi samtakanna auk þess sem Ragnhildur Reynisdóttir formaður flutti skýrslu stjórnar. Fram kom að af nægum verkefnum er að taka í starfsemi samtakanna en tilgangur Frumtaka er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og að gæta þess að sameiginlegir hagsmunir framleiðenda frumlyfja á Íslandi og á alþjóðavísu og almennings fari saman. Frumtök vilja með málflutningi sínum stuðla að framþróun íslenska heilbrigðiskerfisins, að rannsóknum og þróun lyfja hér á landi og að annast sameiginleg mál frumlyfjaframleiðenda á Íslandi.

Í tilefni 20 ára afmælis Frumtaka verður blásið til glæsilegrar afmælisráðstefnu 21. apríl núkomandi þar sem spennandi atriði eru á dagskránni en nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna í öðrum fréttum hér á síðunni.

Jakob Falur lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri og voru honum þökkuð góð störf í þágu samtakanna. Arftaki hans, Pétur Magnússon, var einnig boðinn velkominn.

Nýja stjórn Frumtaka skipa:

  • Ragnhildur Reynisdóttir, MSD, formaður
  • Sandra Júlía Bernburg, Pfizer, varaformaður
  • Andrea Ingimundardóttir, Novartis Healthcare A/S
  • Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir, Johnson & Johnson
  • Helga Erlingsdóttir, Eli Lilly
  • Helga Ósk Hannesdóttir, Novo Nordisk
  • Sonja Steinsson Þórsdóttir, AstraZeneca

Á myndinni má sjá Stjórn Frumtaka 2026-2027.

Frá vinstri: Sandra Júlía Bernburg, Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir, Helga S. Erlingsdóttir, Ragnhildur Reynisdóttir, Sonja Steinsson Þórsdóttir, Andrea Ingimundardóttir og Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri. Á myndina vantar Helgu Ósk Hannesdóttur.