Pétur Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Hann tekur við starfinu af Jakob Fal Garðarssyni, sem gegnt hefur starfinu í 20 ár, frá stofnun samtakanna árið 2005.
Pétur er lyfjafræðingur að mennt og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var forstjóri Reykjalundar í tæp sex ár og þar áður forstjóri Hrafnistuheimilanna í rúm 12 ár. Áður starfaði hann fyrir frumlyfjafyrirtækin MSD og GlaxoSmithKline.
Ragnhildur Reynisdóttir, formaður stjórnar Frumtaka:
“Það er sannarlega fengur að fá Pétur til starfa. Hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigðismálum og víðtæka reynslu af samskiptum við stjórnvöld, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila lyfjaiðnaðarins. Sú reynsla mun reynast mikilvæg fyrir framtíðarþróun Frumtaka. Um leið og við bjóðum Pétur velkominn þökkum við Jakobi Fal kærlega fyrir hans mikilvægu störf í þágu samtakanna undanfarin 20 ár.“
Pétur Magnússon, nýr framkvæmdastjóri Frumtaka:
“Það er heiður fyrir mig að taka við þessu starfi og vonandi mun ég nýtast Frumtökum vel. Mörg krefjandi og spennandi verkefni bíða starfseminnar sem ég hlakka til að glíma við enda eru lyf gríðarlega mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins okkar og velferðarsamfélagsins. Það er svo sérstaklega gaman fyrir mig að koma aftur til starfa fyrir lyfjafyrirtækin því ég tók þátt í stofnun Frumtaka á sínum tíma og sat í fyrstu stjórn samtakanna. Það má því segja að ég sé komin heim aftur.”


