Hvað má bylting á sviði læknavísinda kosta?, er yfirskrift greinar sem Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, skrifar á Vísi, og fjallar þar um álitaefni tengd ATMP gena- og frumumeðferð og væntanlega ráðstefnu um málefnið.
Texti greinarinnar fer hér á eftir:
Við spurningunni um hvers virði er góð heilsa kynnu margir að segja að hún sé ómetanleg. Þegar fram eru komin lyf sem læknað geta áður ólæknanlega sjúkdóma, jafnvel erfðatengda og meðfædda sem annars hefðu háð einstaklingnum alla ævi og hamlað hefðbundinni þátttöku í samfélaginu, kann að þurfa að hnika svarinu í átt að krónu og aurum. Þar er í komið inn á svið siðferði og í sumum tilvikum allt að því harðneskjulegu mati á kostnaði heilbrigðiskerfa og samfélagslegrar virðisrýrnunar við umönnun einstaklings í einhverja áratugi, á móti upphafskostnaði við læknismeðferð. Þau eru ekki öfundsverð sem þurfa að stunda slíkan útreikning. Spurningin er þá orðin: Hvers virði er heilbrigt líf?
Vel þekkt er hversu flókin, tímafrek og kostnaðarsöm þróun nýrra lyfja er. Sá kostnaður verður umtalsvert hærri þegar um er að ræða lyf sem ekki eru ætluð til meðferðar stórra sjúklingahópa, heldur eru jafnvel sniðin að hverjum og einum einstaklingi fyrir sig, líkt og tilfellið er með svokallaða gena- og frumumeðferð, eða ATMP, sem stendur fyrir Advanced Therapy Medicinal Products. ATMP gena- og frumumeðferðum hefur verið líkt við byltingu í lyfjavísindum.
Eðli málsins samkvæmt er kostnaður við þessi nýju meðferðarúrræði mishár, en hann getur hlaupið á tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna. Þá eru sjúkdómarnir sem fengist er við misjafnir og fólki mishamlandi.
Frumtök, heilbrigðisráðuneytið og Landspítali bjóða til ráðstefnu um málefnið næsta mánudag. Sérfræðingar, bæði innlendir og erlendir, koma þá saman og fjalla um meðferðarúrræði og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á þessu sviði. Ekki verður undan því vikist að ræða þar líka siðferðileg álitamál í tengslum við kostnaðinn við að tryggja fólki heilsu og lífsgæði og taka fulltrúar stjórnmálanna til viðbótar við fyrirlesara þátt í umræðum í lok dagskrár.
Fjármögnun heilbrigðiskerfisins er sífelld áskorun og sú tilhugsun er erfið að vegna kostnaðar gæti þurft að neita fólki um lækningu sem fram er komin á hamlandi sjúkdómum. En komi til þess verður það vonandi bara um skamman tíma. Í gegnum tíðina höfum við jú almennt séð þá þróun að ný og dýr meðferðarúrræði koma til sögunnar, sem hafa svo lækkað í verði eftir því sem tækni þróast og skilningur á notkun þeirra eykst. Sjálfsagt sjáum við sömu þróun varðandi þessi nýju meðferðarúrræði, en þó er hér vissulega um að ræða áskorun sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna, þar sem fyrirlesarar varpa ljósi á ýmsa þætti gena- og frumumeðferðar, er að finna á HÉR á vef Frumtaka.
Greinin birtist upphaflega á Vísi.is 8. mars 2023.