
Lyfjastofnun bauð hagsmunaaðilum til kynningarfundar í vikunni um innleiðingu nýrrar evrópskrar lyfjalöggjafar.
Á fundinum fóru fulltrúar Lyfjastofnunar og heilbrigðisráðuneytisins yfir helstu breytingar sem nýja löggjöfin hefur í för með sér. Ísland innleiðir hana vegna aðildar að EES-samningnum, en hún er umfangsmesta endurskoðun á evrópsku lyfjaregluverki í yfir 20 ár. Fram kom að hluti löggjafarinnar tekur gildi um mitt ár 2027 en meginhluti innleiðingarinnar verður haustið 2028. Markmið ESB með breytingunum eru að:
· styðja nýsköpun með nýju hvatakerfi,
· bæta aðgengi sjúklinga að lyfjum í öllum aðildarríkjum,
· takast á við lyfjaskort með áherslu á forvarnir frekar en viðbrögð,
· einfalda og stytta ferla, meðal annars með færri vísindanefndum,
· mæta lýðheilsuáskorunum á borð við sýklalyfjaónæmi og bæta umhverfislega sjálfbærni lyfja og stafræna ferla,
· efla samkeppnishæfni evrópsks lyfjaiðnaðar og styrkja sjálfstæði ESB í lyfjamálum.
Meðal nýjunga sem kynntar voru er skortsvarnaráætlun fyrir öll lyfseðilsskyld lyf og lengri fyrirvari á tilkynningum um lyfjaskort, sem fer úr tveimur mánuðum í 6–12 mánuði. Vísindanefndum fækkar úr fimm í tvær og afgreiðslutími umsókna um markaðsleyfi styttist úr 210 dögum í 180. Fram kom að Lyfjastofnun sé aðeins að hefja vinnu sína og margt enn óákveðið. Upplýsingar um breytingarnar verða birtar á sérstakri síðu á Ísland.is og von er á fleiri fræðslufundum.
Frummælendur á fundinum voru Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, Jana Rós Reynisdóttir, aðstoðarmaður forstjóra, Björg Þorkelsdóttir, lögfræðingur á skrifstofu stjórnsýslu og mönnunar hjá heilbrigðisráðuneytinu, Eva Björk Valdimarsdóttir, sviðsstjóri aðgengis og öryggis, og Sigríður Þóra Kristinsdóttir, deildarstjóri gæðamats hjá Lyfjastofnun og CMDh fulltrúi. Fundarstjóri var Arna Gunnarsdóttir, yfirlögfræðingur Lyfjastofnunar. Að loknum erindum svöruðu frummælendur spurningum fundargesta. Meðfylgjandi mynd sýnir frummælendur fundarins.
Frumtök þakka Lyfjastofnun fyrir upplýsandi fund.


