Frumtök á Degi lyfjafræðinnar 2026

Dagur lyfjafræðinnar er árlegur fag- og samfélagsviðburður á vegum Lyfjafræðingafélags Íslands og er orðinn fastur liður í starfi félagsins. Markmiðið er að leiða lyfjafræðinga saman, bjóða upp á fjölbreytta faglega dagskrá og skapa vettvang fyrir samtal, fræðslu og tengslamyndun.

Dagur lyfjafræðinnar 2026 var haldinn laugardaginn 7. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin stóð frá síðdegi til kl. 19:30 og samanstóð af faglegum erindum, veitingum og góðri samveru lyfjafræðinga.

Tæplega 200 lyfjafræðingar mættu á viðburðinn og var uppselt.

Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, var einn fyrirlesara dagsins. Hann flutti erindi um aðgengi að lyfjum í breyttri heimsmynd, þar sem meðal annars var fjallað um Ísland sem örmarkað, lyfjaöryggi, breytta afstöðu alþjóðlegra lyfjafyrirtækja til Íslands og möguleg áhrif MFN-verðlagningar á aðgengi íslenskra sjúklinga að nýjum lyfjum.

Frumtök þakka kærlega fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í dagskrá Dags lyfjafræðinnar 2026 og óska Lyfjafræðingafélagi Íslands til hamingju með einstaklega vel heppnaðan og skemmtilegan dag.