
Fjölmennur félagsfundur Frumtaka
Frumtök héldu fjölmennan upplýsinga- og vinnufund fimmtudaginn 19. nóvember í Húsi atvinnulífsins, þar sem skrifstofa Frumtaka er til húsa. Á fundinum var farið yfir ýmis málefni sem hafa verið á döfinni í starfi samtakanna undanfarið. Meðal annars kynnti vinnuhópur hugleiðingar sínar um fjölgun aðildarfélaga. Einnig komu fulltrúar frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og kynntu stöðu mála í samstarfsverkefni stofnunarinnar og Frumtaka. Vinnuhópar Frumtaka sögðu frá Evrópusamstarfi, rannsóknum og nýsköpun og CAR-T verkefninu á Landspítala. Fundinum lauk með mjög góðum umræðum og léttum veitingum.
Frumtök þakka öllum kærlega fyrir komuna og þátttökuna.



