Lyfjasúpan: Mikilvægi reglulegrar endurskoðunar lyfjameðferðar

Landssamband eldri borgara (LEB) stóð fyrir málþinginu „Lyfjasúpan“ á Hótel Reykjavík Öskju í dag þar sem sjónum var beint að lyfjanotkun eldra fólks og hvernig stuðla mætti að vandaðri lyfjameðferð, betri eftirfylgni og auknum lífsgæðum.

Fjölbreyttur hópur sérfræðinga fjallaði um málefnið frá ólíkum sjónarhornum. Meðal annars var rætt um fjöllyfjanotkun, niðurtröppun lyfja, byltuhættu, rétta lyfjatöku, hlutverk lyfjafræðinga og lyfjameðferð á hjúkrunarheimilum. Kjartan Þórsson, læknir og stofnandi Prescriby Health, fjallaði sérstaklega um niðurtröppunarmeðferðir, innleiðingu þeirra og árangur.

Eitt af mikilvægustu skilaboðum málþingsins var hversu brýnt er að endurskoða lyfjameðferð eldra fólks reglulega. Athygli vakti jafnframt hversu mikill samhljómur var í málflutningi þeirra fjölmörgu sérfræðinga sem héldu erindi. Eftir því sem fólk eldist fjölgar oft þeim lyfjum sem það notar og samhliða getur aukist hætta á aukaverkunum, milliverkunum og öðrum vandamálum tengdum fjöllyfjanotkun.

Reglubundin lyfjayfirferð gefur tækifæri til að meta hvort lyf séu enn nauðsynleg, hvort skammtar séu viðeigandi og hvort meðferðin í heild sinni þjóni enn þörfum og hagsmunum einstaklingsins. Markmiðið er ekki að fækka lyfjum fyrir alla muni, heldur að tryggja rétta lyfjameðferð á réttum tíma, með öryggi, virkni og lífsgæði að leiðarljósi.

Málþingið vakti þannig athygli á mikilvægu viðfangsefni fyrir heilbrigðiskerfið. Lyfjameðferð á ekki að vera ákvörðun sem tekin er einu sinni, heldur þarf að fylgja henni eftir og endurmeta reglulega eftir því sem aldur, heilsufar og þarfir einstaklingsins breytast.

Frumtök óska Landssambandi eldri borgara til hamingju með vel heppnað og þarft málþing. Á myndinni má sjá Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra flytja opnunarávarp málþingsins.