
Frumtök og Lyfjafræðingafélag Íslands héldu sameiginlegan morgunfund fyrir lyfjafræðinga miðvikudaginn 25. nóvember í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fundurinn, sem var vel sóttur, bar yfirskriftina „Er þetta lyfjaauglýsing eða fagleg fræðsla?“. Þar var rætt um álitamál sem kemur reglulega upp: Hvenær lyf eru auglýst og hvenær heilbrigðisstarfsfólki er veitt fagleg fræðsla um lyfjanotkun?
Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka og lyfjafræðingur, flutti fyrra erindið, „Hvers vegna erum við með reglur um siði og samskipti?“. Hann fjallaði um tilgang siðareglna og þeirra reglna sem gilda um samskipti lyfjafyrirtækja og heilbrigðisstarfsfólks.
Sandra Júlía Bernburg, deildarstjóri hjá Pfizer, varaformaður Frumtaka og lyfjafræðingur, flutti síðara erindið, „Starfsumhverfi lyfjafræðinga hjá lyfjafyrirtækjum“. Hún veitti innsýn í störf lyfjafræðinga innan lyfjafyrirtækja.
Að erindunum loknum voru góðar umræður og spurningar úr sal. Fundarstjóri var Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands.
Frumtök þakka Lyfjafræðingafélagi Íslands fyrir gott samstarf og öllum sem sóttu fundinn fyrir þátttökuna.




