Afmælisráðstefna Frumtaka fer fram á morgun, þriðjudaginn 21. apríl 2026. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, í sal A+B og hefst kl 14. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Vinsamlegast skráið ykkur hér.
Kastljósinu verður beint að fjármögnun í heilbrigðiskerfinu með áherslu á lyfin. Þar ætlum við að velta fyrir okkur spurningum eins og:
• Heilbrigðiskerfið og lyfjaútgjöld – köstum við krónunni en spörum aurinn?
• Eru lyfjaútgjöld hins opinbera stjórnlaus?
• Fjárfestum við í heilsu eða skerum við niður óþarfa kostnað?
• Borgum við meira en hin Norðurlöndin fyrir lyfin okkar?
• Hvernig nýtum við sparnaðinn sem skapast af ódýrari meðferð?
• Skapast svigrúm til að nýta nýju sérhæfðu meðferðarúrræðin?
Til þess að fara yfir þessi álitaefni höfum við fengið til liðs við okkur glæsilegan hóp fyrirlesara og álitsgjafa og kynnum því með stolti eftirfarandi dagskrá:
14:00 Setning ráðstefnu og kynning dagskrár
Jakob Falur Garðarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Frumtaka
14:10 Ávarp ráðherra
Alma Möller, heilbrigðisráðherra
14:15 Aðgengi, nýsköpun og ábyrgð í lyfjamálum
Ragnhildur Reynisdóttir, formaður stjórnar Frumtaka
14:30 Ýmsar hugleiðingar um lyfjamál á Íslandi
Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur.
15:00 Kaffihlé
15:20 Lífið að veði, tölum um fólk
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins
15:35 Hvenær hættum við að vera stórhuga?
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands
15:50 Umræður
Ásamt framsögumönnum taka þátt alþingismennirnir Arna Lára Jónsdóttir, situr í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður.
Umræðum stýra Jakob Falur Garðarsson og Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir.
Lokaorð og ráðstefnuslit
Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka.



