Þegar sparnaður á einum stað eykur kostnað annars staðar.
Frumtök og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hafa gert með sér samkomulag um rannsóknarverkefni sem varpar ljósi á hvernig skipting ábyrgðar og fjármögnunar innan heilbrigðiskerfisins getur leitt til óhagkvæmra ákvarðana fyrir samfélagið í heild.
Verkefnið ber heitið „Eyjur (síló) í heilbrigðiskerfinu“ og fjallar um aðstæður þar sem ákvarðanir um meðferð og þjónustu eru teknar út frá sjónarmiðum einstakra stofnana eða kostnaðarliða, fremur en heildarkostnaði og ávinningi fyrir sjúklinga og samfélagið.
Dæmi um slíkt getur verið þegar meðferðarkostnaður sjúkrahúss er í forgrunni við ákvarðanatöku á sama tíma og kostnaður og óþægindi sem falla á sjúklinga, aðstandendur eða önnur kerfi eru ekki metin til fulls. Þannig getur verið að kostnaður einstakrar stofnunar lækki, en heildarkostnaður samfélagsins aukist verulega.
Markmið verkefnisins er að greina slíkar aðstæður og leggja mat á hvernig unnt sé að stuðla að ákvarðanatöku sem byggir á heildstæðu kostnaðar- og ábatamati. Í verkefninu verða tvö til þrjú raunveruleg dæmi úr íslensku heilbrigðiskerfi tekin til ítarlegrar greiningar og útreikninga.
Vinna við verkefnið er hafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki í haust. Á verkefnistímanum verða haldnir reglulegir áfangafundir þar sem framgangur verkefnisins verður ræddur og áherslur mótaðar í samvinnu milli aðila.
Við lok verkefnisins mun Hagfræðistofnun skila skýrslu með helstu niðurstöðum og tillögum. Niðurstöðurnar verða jafnframt kynntar fulltrúum Frumtaka á sérstökum lokafundi.
Frumtök telja mikilvægt að stuðla að upplýstri umræðu um hvernig nýta megi takmarkaða fjármuni heilbrigðiskerfisins með sem hagkvæmustum hætti og tryggja að ákvarðanir taki mið af heildarhagsmunum sjúklinga og samfélagsins.
Á myndinni eru frá vinstri Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir og Pétur Magnússon frá Frumtökum og Sigurður Jóhannesson og Kári Kristjánsson frá Hagfræðistofnun.



