Í síðustu viku fór fram sameiginlegur fundur Frumtaka, Lyfjanefndar Landspítala og Innkaupadeildar Landspítala með þátttöku Lyfjastofnunar og heilbrigðisráðuneytisins. Fundurinn var vel sóttur.

Yfirskrift fundarins var „Samstarf um öruggt aðgengi að lyfjum á Íslandi.“ Fundarstjóri var Sandra Júlía Bernburg, varaformaður Frumtaka, og Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, flutti inngangsávarp.

Fundurinn var kynntur með eftirfarandi hætti:

Öruggt og áreiðanlegt aðgengi að lyfjum er ein af undirstöðum íslenska heilbrigðiskerfisins. Ísland er lítill markaður og eyja langt frá stærri birgðakeðjum, sem gerir það sérstaklega mikilvægt að tryggja lyfjaöryggi, nægar birgðir og aðgengi að nýjum lyfjum. Þetta krefst öflugs samstarfs stjórnvalda, heilbrigðisstofnana, lyfjafyrirtækja og annarra hagsmunaaðila. Markmið fundarins er að ræða hvernig við getum sameiginlega styrkt aðgengi sjúklinga að lyfjum og aukið öryggi í lyfjakeðjunni, ekki síst á víðsjárverðum tímum.

Að inngangi loknum fylgdu 10 til 15 mínútna erindi frá öðrum framsögumönnum fundarins: Bjarna Sigurðssyni, sérfræðingi í heilbrigðisráðuneytinu, Gerði M. Gröndal, formanni Lyfjanefndar Landspítala, og Hlíf Steingrímsdóttur, varaformanni nefndarinnar, Huldu Harðardóttur, deildarstjóra Innkaupadeildar Landspítala, og Evu Björk Valdimarsdóttur, sviðsstjóra aðgengis og öryggis hjá Lyfjastofnun.

Framsögumenn nálguðust umræðuefnið frá ólíkum sjónarhornum og svöruðu jafnframt spurningum sem aðildarfélög Frumtaka höfðu sent inn fyrir fundinn.

Í seinni hluta fundarins fóru fram líflegar og málefnalegar pallborðsumræður þar sem framsögumenn skiptust á skoðunum og fjölmargir fundargestir tóku virkan þátt í umræðunni.

Frumtök þakka framsögumönnum og öllum þátttakendum kærlega fyrir góðan og árangursríkan fund sem mun án efa stuðla að auknu samstarfi við að tryggja öruggt aðgengi að lyfjum á Íslandi.