Nýlega skrifuðu Frumtök og nýsköpunarmiðstöðin KLAK undir samstarfssamning þar sem Frumtök gerast einn af bakhjörlum KLAK Health.

KLAK Health er sérhæfður viðskiptahraðall fyrir sprotafyrirtæki í heilsutækni sem styður frumkvöðla við að þróa nýjar lausnir á sviði lækningatækni, líftækni, lyfjaþróunar og stafrænna heilbrigðislausna. Markmið verkefnisins er að efla nýsköpun í heilbrigðisgeiranum með því að veita fyrirtækjum aðgang að sérfræðiþekkingu, leiðsögn, tengslaneti og fjárfestatækifærum.

Frumtök eru stoltur bakhjarl KLAK Health og telja mikilvægt að styðja við verkefnið enda byggir framtíð heilbrigðisþjónustu að stórum hluta á nýsköpun. Með því að efla öflugt nýsköpunarumhverfi á sviði heilbrigðis- og líftækni skapast tækifæri til að þróa ný lyf, meðferðir og heilbrigðislausnir sem bæta lífsgæði sjúklinga og styrkja íslenskt heilbrigðiskerfi.

Samstarfið fellur vel að hlutverki Frumtaka um að stuðla að framþróun í heilbrigðismálum, bættu aðgengi að nýjungum og auknum lífsgæðum fólks á Íslandi. Með þátttöku í KLAK Health vilja Frumtök leggja sitt af mörkum til að hraða þróun nýrra lausna sem geta skilað samfélaginu auknum ávinningi til framtíðar.

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samstarfið var formlega innsiglað í Grósku. Frá vinstri eru Haraldur Bergvinsson, verkefnastjóri KLAK Health, Helena Hamzehpour frá Frumtökum, Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK, og Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka.