Regluleg endurskoðun lyfjameðferðar er mikilvæg – grein frá framkvæmdastjóra Frumtaka í Morgunblaðinu
Um helgina birtist í Morgunblaðinu grein eftir Pétur Magnússon, framkvæmdastjóra Frumtaka, um mikilvægi reglulegrar endurskoðunar lyfjameðferðar. Nýlega fór fram málþingið „Lyfjasúpan“ á vegum Landssambands eldri borgara. Þar var fjallað um lyfjanotkun eldra fólks og hvernig stuðla megi að vandaðri lyfjameðferð, betri eftirfylgni og auknum lífsgæðum.
Greinina má lesa hér:

Regluleg endurskoðun lyfjameðferðar er mikilvæg
Lyf gegna lykilhlutverki í nútíma heilbrigðisþjónustu. Þau geta komið í veg fyrir sjúkdóma, hægt á framgangi þeirra, dregið úr einkennum og bætt bæði lífsgæði og lífslíkur. Flest þekkjum við dæmi þar sem lyf hafi skipt sköpum fyrir okkur sjálf eða okkar nánustu.
Nýlega fór fram málþingið „Lyfjasúpan“ á vegum Landssambands eldri borgara. Þar var fjallað um lyfjanotkun eldra fólks og hvernig stuðla megi að vandaðri lyfjameðferð, betri eftirfylgni og auknum lífsgæðum. Meðal umfjöllunarefna voru fjöllyfjanotkun, niðurtröppun lyfja, byltuhætta, rétt lyfjataka, hlutverk lyfjafræðinga og lyfjameðferð á hjúkrunarheimilum.
Meðal mikilvægustu niðurstaðna málþingsins var hversu brýnt er að endurskoða lyfjameðferð eldra fólks reglulega. Eftir því sem fólk eldist fjölgar oft þeim lyfjum sem það notar. Samhliða eykst hættan á aukaverkunum, milliverkunum og öðrum vandamálum sem geta tengst fjöllyfjanotkun. Reglubundin lyfjayfirferð gefur tækifæri til að meta hvort lyf séu enn nauðsynleg, hvort skammtar séu réttir og hvort meðferðin þjóni núverandi þörfum einstaklingsins. Markmiðið er ekki endilega að fækka lyfjum, heldur að tryggja rétta lyfjameðferð á réttum tíma, með öryggi, virkni og lífsgæði að leiðarljósi.
Reglulegt endurmat nauðsynlegt, ekki síst hjá öldruðum
Í meðferð sjúkdóma getur skipt sköpum að hefja rétta lyfjameðferð á réttum tíma. Þó er ekki síður mikilvægt að fylgja lyfjagjöfinni eftir og endurmeta reglulega hvort hún sé enn sú besta fyrir einstaklinginn á hverjum tíma. Þetta á sérstaklega við um eldra fólk. Lyfjanotkun eykst með hækkandi aldri enda fjölgar þá oft langvinnum sjúkdómum. Margir taka lyf við hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki, verkjum, svefnvanda, kvíða eða öðrum sjúkdómum samtímis. Þegar mörg lyf eru notuð samhliða verður meðferðin flóknari og hættan á aukaverkunum og milliverkunum lyfjanna eykst.
Á sama tíma er gott að hafa í huga að líkaminn er breytilegur en sem dæmi eykst hlutfall fitu í líkamanum með aldrinum, sem getur haft áhrif á verkun lyfja. Starfsemi nýrna og lifrar getur einnig breyst og þar með hvernig líkaminn vinnur úr lyfjum. Lyfjaskammtur sem hentaði einstaklingi vel fyrir nokkrum árum þarf því ekki endilega að vera sá rétti í dag. Nýir sjúkdómar geta einnig bæst við eða önnur lyf komið inn í meðferðina. Jafnframt þarf að hafa í huga að hér er ekki einungis um að ræða lyfseðilsskyld lyf heldur þarf að muna að skoða sambandið við lausasölulyf, vítamín og fæðubótarefni og mataræði.
Lyfjafræðingar gætu verið rétti fagaðilinn til að sinna slíkum verkum í samfélaginu okkar.
Markviss lyfjayfirferð getur þannig bæði aukið öryggi og lífsgæði og stuðlað að betri nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu.
Heilbrigðisyfirvöld ættu klárlega að auka vægi lyfjayfirferðar og gætu þá horft til annarra þjóða og áhugaverðs tilraunaverkefnis í Reykjanesapóteki sem dæmi.
Mörg lyf geta verið nauðsynleg
Það er ekki endilega slæmt að nota mörg lyf samtímis. Margir einstaklingar glíma við fleiri en einn langvinnan sjúkdóm og geta því með réttu þurft á nokkrum lyfjum að halda. Í sumum tilvikum getur niðurstaða lyfjayfirferðar verið að halda meðferð óbreyttri. Í öðrum tilvikum getur þurft að breyta skammti, skipta um lyf, einfalda lyfjatökuna eða hætta notkun tiltekins lyfs.
Slíkar breytingar verða að fara fram með öruggum og skipulögðum hætti. Sum lyf þarf að trappa niður smám saman, enda getur skyndileg stöðvun valdið fráhvarfseinkennum eða því að fyrri einkenni komi aftur fram. Breytingar á lyfjameðferð eiga því alltaf að fara fram í samráði við viðeigandi heilbrigðisstarfsfólk. Mikilvægt er að fylgja þeim eftir og meta hvort þær hafi tilætluð áhrif á líðan og heilsu.
Samtalið við einstaklinginn sjálfan skiptir ekki síður máli. Spyrja þarf hvernig honum líði, hvort auðvelt sé að taka lyfin samkvæmt fyrirmælum, hvaða áhrif þau hafi á daglegt líf og hver markmið meðferðarinnar séu. Einstaklingurinn þarf að vita hvers vegna hann tekur hvert lyf og hvernig á að bregðast við ef gleymist að taka skammt eða aukaverkanir koma fram.
Til dæmis geta einkenni eins og svimi, þreyta, ruglingur, minnkuð matarlyst eða óstöðugleiki stundum tengst lyfjameðferð. Regluleg lyfjayfirferð getur hjálpað til við að greina slík tengsl og finna lausnir sem henta einstaklingnum betur.
Lyfjameðferð þarf að þróast með einstaklingnum
Góð lyfjameðferð snýst því ekki aðeins um að ávísa réttu lyfi heldur einnig um að meta reglulega hvort meðferðin sé enn rétt. Eftir því sem fólki fjölgar sem lifir lengur með langvinna sjúkdóma verður þetta sífellt mikilvægari þáttur heilbrigðisþjónustunnar. Skipulögð og reglubundin endurskoðun lyfjameðferðar getur stuðlað að öruggari lyfjanotkun, einfaldari meðferð og betri lífsgæðum. Regluleg endurskoðun lyfjameðferðar hefur því bæði fjárhagslegan sparnað sem ávinning fyrir samfélagið þó við megum aldrei gleyma að aðalatriðið er að fólki líði betur.


