Um 200 manns tóku þátt í 20 ára afmælisráðstefnu Frumtaka, „Hvað ræður í lyfjamálum? Vísindin, peningarnir eða pólitíkin?“ sem fram fór á þriðjudaginn á Hilton Reykjavik Nordica.
Ráðstefnan tókst mjög vel og voru erindin hvert öðru áhugaverðara auk þess sem fróðlegar umræður sköpuðust í pallborði í lok dagskrár. Dagskráin var annars þannig: Að setningu lokinni hófst dagskrá með myndbandsupptöku af ávarpi Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. Orð hennar um stefnubreytingu við opinbera verðlagningu lyfja til að ýta undir aðgengi að nýjustu lyfjum hér á landi vöktu eftirtekt og hleyptu nokkru lífi í umræður sem svo fóru fram. Ragnhildur Reynisdóttir, stjórnarformaður Frumtaka, fjallaði í erindi um aðgengi, nýsköpun og ábyrgð í lyfjamálum og fagnaði boðaðri stefnubreytingu. Þá fór Gylfi Ólafsson heilsuhagfræðingur yfir margvíslega þætti lyfjamála og tók saman meðal annars saman tölur um heildarnotkun ákveðinna lyfjaflokka, með upplýsingum frá bæði Landspítala og Sjúkratryggingum. Að loknu kaffihléi tók við erindi Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins, um mikilvægi þess að hafa aðgengi að bestu fáanlegu meðferðarkostum og minnti á að undir væri fólk og líf þess, en ekki tölfræði. Síðust frummælenda var svo Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, sem velti því fyrir sér hvort Íslendingar væru ekki lengur stórhuga í nálgun sinni á heilbrigðisþjónustu og rifjaði meðal annars upp byggingu Landspítalans á fjórða áratug síðustu aldar. Frummælendur tóku svo þátt í fjörugum pallborðsumræðum ásamt alþingismönnunum Önnu Láru Jónsdóttur og Ólafi Adolfssyni en þær fóru fram undir stjórn Jakobs Fals, fráfarandi framkvæmdastjóra Frumtaka og Ragnars Freys Ingvarssonar læknis. Pétur Magnússon framkvæmdastjóri Frumtaka, flutti loks lokaorð og sleit ráðstefnunni.
Eins og áður segir mættu alls tæplega 200 manns sem er framar björtustu vonum en án efa endurspeglar þessi góða þátttaka áhugan á þessu mikilvæga málefni.
Samhljómur var því að jafnvægi verði að ríkja milli vísindanna, peninganna og stjórnmálanna svo að aðgengi að lyfjum hér á landi sé sem markvissast hverju sinni, sjúklingum og samfélaginu til heilla. Jafnframt kom fram mikilvægi þess að allir vinni saman að því að gera heilbrigðiskerfið á Íslandi með því allra besta sem gerist í heiminum. Í því samhengi er ljóst að rétt notuð eru lyf ekki aðeins hluti af heilbrigðiskerfinu, heldur ein af undirstöðum heilbrigðs, sterks og réttláts samfélags.
Um leið og Frumtök þakka fyrirlesurum, þátttakendum í pallborðsumræðum og öllu aðstoðarfólki ráðstefnunnar, er öllum ráðstefnugestum þakkað kærlega fyrir komuna.
Fleiri myndir frá ráðstefnunni má finna á síðum Frumtaka á Facebook og LinkedIn.



