Skip to main content

Í gær fór fram árlegur samnorrænn fundur um skráningarferli lyfja á Norðurlöndum en að þessu sinni fór fundurinn fram í Kaupmannahöfn. Á þessum fundi hittast saman fulltrúar lyfjafyrirtækja og systursamtaka Frumtaka á Norðurlöndunum ásamt fulltrúum frá Lyfjastofnunum þessara landa. Markmiðið er að auka samstarf og samvinnu á Norðurlöndum milli þessara aðila í málaflokknum. Samanlagður íbúafjöldi Norðurlandanna er aðeins tæplega 5% af íbúafjölda Evrópu svo Norðurlöndin teljast öll lítil lönd í stóra samhengi Evrópu. Við getum þó áorkað ýmsu saman og látið rödd okkar hljóma kröftuglega á alþjóða vettvangi.

Á dagskrá þessa fundar var, auk hefðbundinna atriða um aukna möguleika á samvinnu Norðurlandanna, sérstök áhersla á umræður um stöðu mála við innleiðingu nýrrar evrópskrar reglugerðar í málaflokknum.

Að þessu sinni voru fimm íslenskir þátttakendur og sjást þeir hér á þessari mynd: Frá vinstri: Ólöf Ásta Jósteinsdóttir frá skráningadeild Icepharma, Hildur Sif Pálmarsdóttir frá skráningardeild Vistor, Sigríður Þóra Kristinsdóttir og Valgerður Guðrún Gunnarsdóttir frá Lyfjastofnun og Pétur Magnússon frá Frumtökum.