Skip to main content

Í gær boðuðu Frumtök félagsmenn sína til upplýsinga- og vinnufundar en hefð er fyrir slíkum fundi í byrjun sumars, í kjölfar aðalfundar. Það var frábær mæting en á fundinum var farið yfir niðurstöður stefnumótunar Frumtaka og innleiðingu ýmissa aðgerða í framhaldinu. Þar ber helst að nefna yfirlit yfir vinnuhópa Frumtaka. Kynningar voru frá nokkrum starfandi vinnuhópum en einnig var kynnt var nýtt fyrirkomulag þeirra 18 ólíku vinnuhópa sem Frumtök munu starfrækja á þessu starfsári. Vinnuhóparnir vinna að ólíkum skilgreindum markmiðum en ákveðið hefur verið að hafa hópana frekar fleiri og með skilgreindari markmið en verið hefur. Góðar umræður sköpuðust um starfið.

Ennþá eru laus sæti í nokkrum vinnuhópum fyrir áhugasama félagsmenn og verða þessi sæti auglýst á næstunni.

Meðfylgjandi mynd var tekin á fundinum í gær og sýnir Ragnhildi Reynisdóttur formann Frumtaka í sinni kynningu.

Frumtök þakka öllum sem mættu fyrir þátttökuna.