Sterkt samband og náið samstarf við opinberar stofnanir skiptir okkur miklu máli, enda deilum við sameiginlegu markmiði: að bæta líf sjúklinga og fjölskyldna þeirra.
Í síðustu viku héldu Frumtök sinn árlega fund með Lyfjastofnun. Rúna Hauksdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar setti fundinn og kynnti áhugaverðar staðreyndir og tölfræði um daglega starfsemi stofnunarinnar. Að því loknu svaraði Lyfjastofnun spurningum sem höfðu verið sendar inn fyrirfram af aðildarfyrirtækjum Frumtaka.
Umræðurnar voru uppbyggilegar, jákvæðar og lausnamiðaðar.
Við þökkum Lyfjastofnun kærlega fyrir góðan og gagnlegan fund



