Í gær birtist í Morgunblaðinu áhugaverð grein eftir Söndru Júlíu Bernburg varaformann Frumtaka og Pétur Magnússon framkvæmdastjóra Frumtaka undir nafninu: Stefnubreyting heilbrigðisráðherra ætti að greiða leið nýrra lyfja til íslenskra sjúklinga.

Greinina má lesa hér:

Stefnubreyting heilbrigðisráðherra ætti að greiða leið nýrra lyfja til íslenskra sjúklinga.

Lífsgæði, mannréttindi og heilbrigðisþjónusta Norðurlandanna eru með því besta sem þekkist í heiminum. Eitt af þeim atriðum sem viðheldur háum lífgæðum og gerir heilbrigðiskerfi fyrsta flokks er aðgangur heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga að nýjum lyfjum. Lyf eru ekki aðeins meðferð, heldur einnig fjárfesting í framtíð samfélagsins.

Ísland er örmarkaður í alþjóðlegu lyfjaumhverfi.

Samanlagður íbúafjöldi Norðurlandanna er tæplega 5% af íbúafjölda Evrópu og því teljast Norðurlöndin lítil lönd í stóra samhengi Evrópu. Að því sögðu er ljóst að Ísland er örmarkaður í alþjóðlegu lyfjaumhverfi. Það er ekki neikvæð lýsing, heldur staðreynd sem hefur raunverulegar afleiðingar. Sjúklingahópar eru oft fámennir en kröfur um skráningu, gæði, eftirlit og upplýsingagjöf lyfja eru í grunninn sambærilegar og í mun fjölmennari ríkjum.

Af þeim sökum er hlutfallslegur kostnaður við að koma lyfi á markað meiri hér en annars staðar. Þetta skiptir máli þegar rætt er um aðgengi, því aðgengi er ekki aðeins stefnumarkandi markmið á blaði, heldur ferli sem þarf að vera raunhæft og fyrirsjáanlegt í framkvæmd. Óljósar forsendur eða rangir hvatar geta haft veruleg áhrif á það hvenær nýjar meðferðir skila sér til sjúklinga.

Stefnubreyting á viðmiðum við verðlagningu lyfja.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðaði nýlega breytingu heilbrigðisyfirvalda á viðmiðum við verðlagningu lyfja sem getur aukið aðgengi að nýjum lyfjum á Íslandi. Ráðherra segir að í ákvörðunum um lyfjaverð á Íslandi verði nú í auknum mæli miðað við meðalverð á Norðurlöndum í stað þess að miða við lægsta verð.

Ákvörðunin er skýrt merki um aukinn vilja heilbrigðisyfirvalda til að bæta skilyrði fyrir markaðssetningu nýrra lyfja hér á landi þar sem Ísland hefur lengi verið eftirbátur nágrannaþjóðanna þegar kemur að upptöku nýjustu lyfja.

Ráðherra greindi frá fyrirhugaðri breytingu í ávarpi sínu á ráðstefnu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, sem fram fór í apríl síðast liðnum.

„Ef við setjum verðið of lágt getur það dregið úr hvata fyrirtækja til að koma með lyf hingað til lands. Með því að horfa til meðalverðs Norðurlanda erum við að leitast við að skapa jafnvægi milli kostnaðar og aðgengis, milli ábyrgðar og framfara, og milli þess að vera samkeppnishæf sem markaður, en á sama tíma skynsöm í ráðstöfun fjármuna. Þetta eru skref í átt að raunhæfari og sjálfbærari nálgun,“ sagði Alma D. Möller í ávarpi sínu.

Ný lyf koma síðar á markað á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum.

Samkvæmt nýlegri könnun EFPIA, Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda, hafði Ísland einungis tekið upp 34 prósent nýrra lyfja sem skráð voru í Evrópu á tilteknu árabili. Til samanburðar hafði Þýskaland tekið 90 prósent lyfjanna í notkun og Danmörk 60 prósent en Ísland er í neðsta sæti á meðal Norðurlandanna.

Af þessu ástandi hafa íslenskir læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk, sem og sjúklingar, lýst yfir verulegum áhyggjum.

Stefnubreytingin sem heilbrigðisráherra hefur boðað markar því tímamót. Ákvörðun stjórnvalda eftir efnahagshrun að miða verðlagningu lyfja, sem að jafnaði eru kostnaðarsöm og vandmeðfarin, við lægsta verð á Norðurlöndum hefur verið raunveruleg markaðshindrun fyrir ný lyf, bæði vegna áhrifa á verðmyndun í öðrum löndum og vegna annars tilkostnaðar. Eins og áður segir er Ísland örmarkaður sem engu að síður lýtur sömu kröfum og stærri markaðir.

Látum verkin tala.

Frumtök eru samtök framleiðenda frumlyfja. Tilgangur Frumtaka er að efla og dýpka umræðu um lyfjamál og að gæta þess að sameiginlegir hagsmunir framleiðenda frumlyfja á Íslandi og á alþjóðavísu og almennings fari saman. Frumtök vilja með málflutningi sínum stuðla að framþróun íslenska heilbrigðiskerfisins, að rannsóknum og þróun lyfja hér á landi og að annast sameiginleg mál frumlyfjaframleiðenda á Íslandi.

Bættu aðgengi að nýjustu mögulegu lyfjameðferðum fylgir víðtækur samfélagslegur ávinningur. Nú er því komið að því að láta verkin tala. Það er öllum í hag að stefnubreyting heilbrigðisráðherra varðandi verðmyndum lyfja verði hrint í framkvæmd sem allra fyrst. Frumtök eru, hér eftir sem áður, tilbúin að aðstoða við innleiðinguna ef það leiðir til þess að ferlið verði markvissara og skjótara.

Látum verkin tala, það er ekki eftir neinu að bíða.

Sandra Júlía Bernburg, varaformaður stjórnar Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja.

Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja.