Frumtök heimsóttu nýlega Innkaupadeild Landspítala og áttu þar gagnlegan og fróðlegan fund með starfsfólki deildarinnar.

Innkaupadeildin gegnir lykilhlutverki í rekstri spítalans. Hún annast útboð og innkaup á vörum og þjónustu sem tengjast veitingu annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu, bæði fyrir Landspítala og aðrar heilbrigðisstofnanir. Deildin hefur einnig það hlutverk að tryggja að farið sé eftir lögum og reglum um opinber innkaup, hefur frumkvæði að stefnumótun í innkaupamálum og leiðir þróunarverkefni sem miða að betra skipulagi og einföldun innkaupaferla. Markmiðið er að lækka beinan og óbeinan kostnað við innkaup og bæta skilvirkni í starfseminni, eins og segir á heimasíðu Landspítala. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://island.is/s/landspitali/innkaupadeild

Í heimsókninni voru meðal annars rædd ýmis praktísk atriði tengd útboðsmálum og öðrum þáttum sem varða starfsemi innkaupadeildar.

Frumtök þakka Innkaupadeild Landspítala kærlega fyrir fínar móttökur, góðar umræður og gagnlegan fund.