Aðalfundur Frumtaka var haldinn á Vox Club í Reykjavík 20. mars síðastliðinn.

Ný stjórn Frumtaka ásamt framkvæmdastjóra. Frá vinstri: Sigrún Helga Sveinsdóttir, Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir, Helga Ósk Hannesdóttir, Sólveig Björk Einarsdóttir, Jakob Falur Garðarsson, Helga Erlingsdóttir, Sandra Júlía Bernburg, og Andrea Ingimundardóttir.
Ný stjórn var kjörin á fundinum og líkt og síðustu ár er stjórnin einungis skipuð konum, en þannig hefur skipast í stjórnina frá árinu 2021.
Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf. Formaður stjórnar, Sólveig Björk Einarsdóttir, flutti skýrslu stjórnar og Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, stýrði fundinum og gerði grein fyrir helstu atriðum í starfsemi samtakanna.
Þá flutti Anna Steinsen hjá KVAN erindi fyrir fundargesti.
- Nýja stjórn Frumtaka skipa:
- Andrea Ingimundardóttir, Novartis.
- Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir, Novo Nordisk.
- Helga Erlingsdóttir, Eli Lilly.
- Helga Ósk Hannesdóttir, deildarstjóri viðskipta- og greiningadeildar hjá Vistor.
- Sandra Júlía Bernburg, Pfizer.
- Sigrún Helga Sveinsdóttir, Boehringer Ingelheim.
- Sólveig Björk Einarsdóttir, GSK.